Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram um helgina og þótti heppnast mjög vel, nema fyrir þær sakir að flestir ef ekki allir hlaupararnir villtust og hafa ekki sést síðan!
“Já þetta fór kannski ekki alveg eins og við ætluðum” – sagði Tóti Týndi forsvarsmaður hlaupsins í viðtali við tíðindamann Timbur-frétta í gær. “Sko við gleymdum smá að gefa út leiðbeiningar um hvert ætti að fara, og svo gleymdum við að merkja leiðina og við gleymdum líka að vakna um morguninn til að stjórna hlaupinu. En að öllu öðru leyti gekk þetta bara alveg glimrandi vel að okkar mati!”
Hér sést Halli Hlaupkarl, hann lagði af stað í Reykjavíkurmaraþoninu, en er ekki alveg viss hvar hann er núna!

