(Stundum mega fréttirnar bara vera eins og þær eru án okkar aðstoðar – innskot ritstjóra)
Magnús smiður leitar nú logandi ljósi að kofa sem hann keypti af sveitarfélaginu Bláskógabyggð og ætlaði að flytja að sumarhúsi frændfólks síns og gera upp. Þegar Magnús hugðist vitja kofans var hann horfinn með öllu. Sjálfur sá Magnús kofann með berum augum í síðustu viku, og enginn sem hann kannast við kannst við að hafa tekið kofann.
“Við ætluðum að nota þetta sem auka gistiaðstöðu. Bara gera þetta næs. Við sáum tækifæri í þessu, en nú er það bara horfið. Þetta eru mikil vonbrigði og svekkelsi. Það situr sárt í manni að ætla að gera eitthvað næs og plana eitthvað en svo eru bara hlutirnir horfnir.“
Hér má sjá mynd af þessum glæsikofa. þess má geta að myndin var tekin áður en kofinn hvarf!

