Tengjum ríkið, árleg ráðstefna Timburmanna þar sem bætt aðgengi að áfengi hins opinbera er umfjöllunarefnið. Ráðstefnan verður haldin 18. september 2025 uppi á miðjum Vatnajökli.
Yfirsrift ráðstefnunnar þetta árið snýr að bættu flæði birgða til neytenda á óstöðugum tímum.
“Já, þetta er frekar erfitt núna, flutningar eru orðnir stórhættulegir og árásir á birgðabíla eru daglegt brauð. Það er helst að maður óski eftir neðanjarðarpípum beint frá Ríkinu, sem gætu flutt þetta hindrunarlaust til okkar” segir forsprakki ráðstefnunnar Guðfullur Jónas, sem svo skemmtilega vill til að er formaður drykkjuöryggissveitar Timburmanna DREKK-UM.
