Eins og flestir vita verður haldið upp á menningarnótt um hábjartan dag næstkomandi laugardag. Að sögn borgarstýru er það gert vegna þess að hún er sofandi á nóttunni og missi þá af öllu fjörinu!
Dagskráin í ár þykir með afbrigðum vönduð og ætti svo sannarlega að vera eitthvað fyrir alla í boði víðsvegar um borgina, eins og glögglega má sjá á meðfylgjandi korti.
Dagskrá Menningarnætur:
13:00 Fjórtán fóstbræður syngja meðlag í húsnæði Landsbankans
14:00 Latibær er lokaður í tilefni dagsins, einn fóstbróðir vissi það ekki og týnist
15:00 Þrettán fóstbræður syngja svanasönga við tjörnina
16:00 Tjörnin er blaut og einn fóstbróðir dettur ofan í
17:00 Tólf fóstbræður syngja húsnæðislög við Alþingi
18:00 Einn fóstbróðir fær greiðslustöðvun húsnæðisláns og hellist úr lestinni
19:00 Ellefu fóstbræður syngja vegalög á Laugavegi
20:00 Lögreglan er á svæðinu og einn fóstbróðir er sektaður skv. lögum
21:00 Tíu fóstbræður syngja sitt síðasta, þeir mega ekki við að missa fleiri úr hópnum
22:00 Flugeldi (ýlu) er skotið upp frá Faxagarði og með því lýkur menningarnótt – góða nótt!

