Frá því Kafteinn Timburmanna varð full-orðinn heyrir það til undantekninga að hann sé edrú. Að minnsta kosti svona á almannafæri. Spurður um ástæður þessa svarar Kafteinninn “Tja, þetta hefur nú kannski ekki verið ætlunin en það bara er þannig að fólk fær meira sjokk að sjá mig ófullan en fullan. Ég er þannig á vissan hátt bara að gera þetta af virðingu og nærgætni við náungann sko, hikk!”
Eins og margir vita er nú sopinn ekkert ódýr á Íslandi, þrátt fyrir allar nýju netverslanirnar og svoleiðis. Vinir Kafteinsins hafa því stofnað styrktarsjóð svo Kafteinn geti nú haldið áfram að vera fullur. “Það þýðir ekkert að taka sénsinn á því að sjá hann edrú sko” segir einn vinurinn sem vill ekki láta nafns síns getið. “Svo endilega leggið eitthvað í púkkið, allir allir allir”.
