Nýlega barst spennandi auglýsing inn á fasteignavef Timburmanna, en þar er um að ræða húseign í miðbæ Reykjavíkur sem er sannkölluð perla, þó hún láti lítið fyrir sér fara.
Húsið sjálft er reyndar komið töluvert til ára sinna, en því hefur alltaf verið vel við haldið og kappkostað að halda eins vel í uppuna þess og kostur er. Það var myndlistamaðurinn líttþekkti Daníel Drasli sem byggði húsið af fullkomnum vanefnum á sínum tíma. Þeir sem síðar keyptu húsið gerðu svo allt sem þeir gátu til að halda upprunalegum sérkennum hússins. Húsið þykir mikil bæjarprýði, enda stíllinn mjög sérstakur og sjarmerandi.
Í lýsingu á fasteignavefnum kemur fram að í húsinu sé mjög góð náttúruleg loftræsting, ákaflega lítið um rottugang, örfáar veggjalýs og andi Daníels svífi svo sannarlega um húsið, enda er það fullkomlega reimt!
Áhugsamir eru vinsamlega beðnir um að skila tilboðum inn um opna gluggann við hiðina á grænu hurðinni!

