Hinn mjög svo harðduglegi aðstoðarmaður Ágúst September hefur nú verið ráðinn aðstoðarmaður menntamálaráðherra. En það þótti full ástæða til að tryggja aðstoðarmann í það ráðuneyti þar sem ráðherrann sjálfur, Guðmundur Á Þingi, hefur ekki enn fundið skrifstofuna sína. Eins og kunnugt er kann menntamálaráðherra ekki að lesa og hefur hann því ekki enn fundið skrifstofu sem er merkt honum í ráðuneytinu.
“Nei það er rétt” – sagði Guðmundur Á Þingi í rosalega málvilltu viðtali við Timbur-fréttir. “Allar skrifstofurnar hérna eru merktar með einhverjum stöfum og ég skil ekkert svoleiðis. Ég vona bara að aðstoðarmaðurinn minn fari að mæta sem fyrst, ég þarf að pissa!”

