Stjórnarformaður samstæðu Timburmanna neyddist nýverið til að setja stjórnarmeðlim samstæðunnar í tímabundið leyfi vegna atviks sem þótti hneykslanlegt.
Stjórnarmeðlimurinn birti tilkynningu og mynd af einum meðlimi Timburmanna þar sem sjá mátti hann “dauðan” og var honum þakkað fyrir gott framlag og virka ástundun þessa vikuna.
Það var ekki fyrr en stór hluti annarra meðlima voru mættir heim til hans til að framkvæma skyldu Timburmanna, sem felst að sjálfsögðu í því að láta aldrei góða drykkju úr hendi sleppa, að upp komst að aðeins var um sviðsetningu að ræða í auglýsingaskyni. Herferðin sem um ræðir, og auglýsingin var gerð fyrir, snýst um kynningu á nýju víni frá bruggverksmiðjunni Dauðadrukkinn og hafði þessi óláns stjórnarmeðlimur látið freistast til að taka þátt í gerð hennar.
“Þú leikur þér ekkert að svona, það bara má ekki!”
Stjórnin lítur þetta grafalvarlegum augum enda ekki gott að valda öðrum félögum slíku hugarangri. Var því ákveðið að setja stjórnarmeðliminn í hálfs dags bann frá starfsemi samstæðu Timburmanna. Ekki var talið ráðlegt að refsa fyrirsætunni sjálfri þar sem rannsókn leiddi í ljós að hann hafði í raun haldið að hann væri að drekka gæðavín og var því blekktur að nokkru leyti sjálfur. Umrædd mynd sýndi hann því svo ímyndunarfullan að hann hélt hann væri “dauður”.
