Tveir Timburmenn hafa farið fram á að sala á óáfengum bjór verði stöðvaður í matvöruverslunum á Íslandi. Þömbunarsinnar segja að a.m.k. þrír félagar í Timburmönnum hafi í síðustu viku gert þau afdrifaríku mistök að grípa með sér kassa af óáfengum bjór í Bónus. Ljóst þykir að þetta hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir viðkomandi félaga þar sem óvæntri og óumbeðinni afrennslu var þar með komið af stað með þeim afleiðingum að a.m.k. tveir þeirra þurftu að glíma við ótímabæra þynnku þar til mistökin uppgötvuðust og hægt var að bregðast við með hraði.
Kvalafullar 4 klukkustundir
Kafteinn Timburmanna er ekki kátur með þetta eins og gefur að skilja. “Við höfum nú alltaf staðið í þeirri trú að Ísland væri nú eitt af bestu löndunum til að stunda drykkju þar sem aðgengi að slíkum vörum hefur alltaf verið stýrt af þingi og stjórn. Það er ljóst að Timburmenn þurfa að endurskoða hvar staðsetning höfuðstöðva samsteypunnar verða í framtíðinni ef ekki verður gerð bragabót á þessu”, sagði Kafteinninn alvarlegur á svip. Ekki skrýtið þar sem ljóst er að timburmenn fara ekkert sérstaklega vel í Timburmenn. Heimildir Timburfrétta herma að fórnarlömbin hafi kvalist í allt að 4 klukkustundir vegna þessara mistaka.
Einn ónefndur Timburmaður greip til þess ráðs að fara í drykkjuverkfall í gær til að þrýsta á stjórnvöld að breyta þessari fásinnu. Aðspurður segist honum líða vel á öðrum degi drykkjuverkfallsins. “Þetta er jú auðvitað erfitt. En þetta er mér líka mikið hjartans mál. Við getum ekki leyft þessu að halda svona áfram. Afleiðingarnar eiga eftir að verða hroðalegar ef það verður svo.”
Timburfréttir senda baráttukveðjur á Timburmanninn.
