Ölvunarendurskoðun ríkisins hefur sett fram 18 athugasemdir sem krefjast úrbóta í skýrslu sinni um drykkjuendurskoðun á drykkjuhaldi Timburmanna fyrir árið 2022.
Óreiða í drykkjuhaldi og drykkjarferla skortir.
Ekki eru skráðir ferlar til fyrir drykkju, þamb, almenna skál og varanlega timburmenn. Mælst er til þess að stjórn Timburmanna búi til ferla og komi í gang innra eftirliti til að tryggja að þeim ferlum sé framfylgt.
Einnig er gerð athugasemd við að tveim drykkjuskýrslum hafi verið skilað inn. Einni frá kafteini félagsins og annarri frá stjórn og bar þeim ekki saman um magn innbyrtra veiga.
Mælst er til þess að aðeins ein drykkjuskýrsla sé gerð fyrir hvert ár til að tryggja rekjanleika í drykkjuhaldi. Þetta er talið sérstaklega mikilvægt með tilliti til aðkomu Timburmanna að ALKO (Alcohol Knockouts) sem gefa hinum ýmsu félögum um allan heim samhæfða drykkjueinkunn.
Ekki náðist í Formann Timburmanna við vinnslu þessarar fréttar, engum að óvörum.

