Sú tillaga hefur komið fram hjá stjórnarráði Timburmanna að leggja skuli niður langstærstu og viðamestu nefnd Timburmanna, þ.e.a.s. Timburmannanafnanefndina sjálfa. Timburmannanafnanefndin var, einsog kunnugt er, sett á laggirnar fyrir mörgum misserum síðan þegar bera fór á því að Timburmenn voru byrjaðir að skíra börn sín undarlegum nöfnum, eins og til dæmis Jón! Ljóst þótti að framferði sem þetta gengi ekki til lengdar og því var Timburmannanafnanefnd sett á laggirnar.
Nú mörgum árum síðar er semsagt komin fram tillaga um að leggja bera niður Timburmannanafnanefndina og segir flutningstimburmaður tillögunnar Rörtöng Pétursson að nefnd sem þessi sé ekkert annað en tímaskekkja og því sé löngu tímabært að leggja hana niður. Aðrir flutningsmenn tillögunnar eru: Blómavasi Gunnarsson, Rjúpufótur Rassmussen og Kardimommudropi Laufdal.

Kafteinn formaður furðu lostinn á svip.
