Það er kunnara en frá þurfi að segja að hegðun kafteins Timburmanna síðustu misserin hefur komið hinum óbreytta Timburmanni spánskt fyrir sjónir, svo ekki sé meira sagt. Kafteinninn hefur haldið sig mikið til hlés og má jafnvel segja að hann hafi farið Huldu höfði!
Tíðindamaður Timburfrétta hafði samband við kafteininn, sem ekki vildi þó koma í opinbert viðtal á hinni opinberu sjónvarpsstöð Timburfrétta, en það er þó sennilega mest vegna þess að sú stöð er ekki til.
Kafteinninn sagði sínar farir ekki sléttar þegar hann var spurður hvers vegna hann færi Huldu höfði…
“Tja það er nú hvorki frábært né auðvelt að vera hvítur miðaldra karlmaður í dag” – sagði kafteinninn með grátstafinn í kverkunum, “en þegar maður þarf ofan á allt annað að vera með höfuð af Huldu, þá er nú ekki von að maður sé að flagga því neitt ofboðslega opinberlega!”
Ef meðfylgjandi mynd prentast vel þá má sjá kafteininn með Huldu höfuðið…

