
Stjórn Timburmanna var nýlega kölluð saman að beiðni kafteins félagsins.
Á þessum merka fundi var ákveðið að hrinda í gang aðgerð sem er hluti af lang- lang- langtíma heimsyfirráðamarkmiði Timburmanna.
Af því tilefni er nú hér birt skipun til félagsmanna:
“Safnið afláti yðar í bauka til varðveislu og vottunar í langri framtíð” (aflát = saur, skítur, poopoo – innskot fréttamanns)
Hver tilgangurinn með þessu er í raun er ekki vitað, en eins og flestir hafa fyrir löngu áttað sig á þá er þessi Timburmanna félagsskapur ekkert nema dulúðin ein og erfitt að nálgast upplýsingar um það hvað raunverulega á sér stað þar.
