Hinni stórglæsilegu söngvakeppni Timburmanna lauk um helgina eftir nokkur frábær undanúrslitakvöld, eins og venja er. það voru að lokum félagarnir Gísli, Eiríkur og Helgi, sem komust enn einu sinni í úrslit, og það var svo gjaldkeri Timburmanna sem kom óvænt inn í úrslitin sem “villt kort” (þýð: wild card – fyrir aula sem kunna ekki útlensku).
Keppnin var öll hin glæsilegasta að vanda og var mikil spenna þegar símakosningin stóð yfir, en að lokum fór það svo að gjaldkeri Timburmanna bar sigur úr býtum, en það er einnmitt ellefta árið í röð sem hann vinnur keppnina sem einmitt hefur verið haldin ellefu sinnum.
Hvert atkvæði kostaði þrjú þúsund krónur og var því snemma nokkuð ljóst að engir venjulegir Timburmenn hefðu ráð á að greiða atkvæði, en þar sem gjaldkerinn skaffar sér sín eigin laun úr sjóðum félagsins þá hafði hann gert ráð fyrir þessum útgjöldum og gat því greitt sjálfum sér úrslitaatkvæðið, eins og hann hafði jú gert tíu sinnum áður, með góðum árangri.
Framkvæmdastjóri keppninnar, sem gjaldkerinn réð til starfa fyrir ellefu árum, kvaðst aðspurður hæstánægður með keppnina og segist varla geta beðið eftir að sjá gjaldkera félagsins flytja lagið “Money money money” í ellefta sinn í aðalkeppninni sem haldin verður í Lonogdon í maí næstkomandi klukkan 19:00.
Gjaldkeri Timburmanna, Eddi Money, skömmu eftir ellefta sigur sinn…

