Í dag átti sér stað tímamótafundur þar sem forsprakkar bankasýslunnar, bræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi, áttu að sitja fyrir svörum hjá fjárlaganefnd varðandi sölu ríkisins í Íslamsbanka. Því miður komst Helgi ekki á fundinn því hann rataði ekki og gat ekki notað símann sinn því hann kann ekki á svona maps dót. En það stöðvaði ekki Gísla og Eirík, og ekki stóð á svörum hjá þeim. Við í Timburfréttum grípum hér niður í helstu spurningar og svör á þessum fundi…
Fjárlaganefnd: Gerið þið ykkur grein fyrir alvarleika þessa máls, traust þjóðarinnar er farið, trúnaður er brostinn og allt er á tjá og tundri?
Bræðurnir: Já sko það er hann Helgi sem sér um að gera sér grein fyrir hlutum þannig að við bara vitum ekkert um það.
Fjárlaganefnd: Hver ber ábyrgð á því að þetta fór allt í handaskolun, val fjárfesta var ekki rétt, gagnsæi var ekki neitt og allt á tjá og tundri?
Bræðurnir: Já sko hann Helgi ætlaði að skoða þetta betur eftir helgi.
Fjárlaganefnd: Nú segir fjármálaráðherra að þið séuð með allt niður um ykkur í þessu máli og það hið hafið algjörlega klúðrað þessu og skilið allt eftir á tjá og tundri?
Bræðurnir: Já sko hann hlýtur þá að hafa sagt Helga það sko, við vitum sko ekkert um það.
Fjárlaganefnd: Teljið þið að ykkur sé stætt á því að sitja áfram í forsvari bankasýslunnar eftir að hafa klúðrað þessum málum svona rosalega og skilið allt eftir á tjá og tundri?
Bræðurnir: Já sko við erum bara ekki búnir að spyrja hann Helga að því þannig að við vitum sko bara ekkert um það sko.
Svo mörg voru þau orð. Timburfréttir munu áfram flytja fréttir af þessu máli sem og öðrum.

