Nýkjörinn og endurkjörinn formaður stéttarfélagsins Hrellingar hefur nú hafið endurráðningar á skrifstofu félagsins, en sem kunnugt er, sagði formaðurinn öllum starfsmönnum skrifstofunnar upp, vegna þess að þeir voru ljótir og leiðinilegir upp til hópa. “Þetta voru bara lélegir pappírar” – sagði formaður Hrellingar í öfgafullu viðtali við Timbur-fréttir nú fyrir skemmstu. “Þetta pakk vildi bara fá allskonar, þau vildu skrifborð, stóla, kaffivél og klósett og allskonar annan óþarfa, -eins og það sé bara alveg sjálfsagt mál á vinnustað!”
Nýráðinn framkvæmdastjóri Hrellingar er mörgum að góðu kunnur, en það er einmitt hann Pappírs-Pési, sem reynt hefur fyrir sér víða, meðal annars í kvikmyndaleik svo eitthvað sé nefnt. “Já Pappírs-Pési er frábær gaur” sagði formaður Hrellingar aðspurð um álit sitt á nýja framkvæmdastjóranum. “Hann er svo góður pappír þessi gæi, þarf hvorki borð, stól, kaffivél né klósett, hann liggur bara á gólfinu og er ekkert fyrir mér, og það finnst mér bara frábært!”
Svo mörg voru þau orð. Timbur-fréttir sendir Pappírs-pésa hugheilar samúðarkveðjur með nýja starfið!
