Á næsta aðalfundi Timburmanna verður nýr með-limur kynntur til leiks. Það sem heyrir til tíðinda við þennan nýja með-lim er að hann er öfugur. Timbur-fréttir leituðu álits formanns Timburmanna vegna málsins og verður að viðurkennast að hann var frekar öfugsnúinn í svörum, já bara hálf öfugur, nei afsakið önugur.
“Já ég er ekki hrifinn af þessu” – er haft eftir formanninum. “Ég vil nú bara helst að menn snúi rétt og séu hreinir og beinir, og kann ekki alveg að meta það þegar menn mæta öfugir til leiks.”

Hinn nýji timburmaður vildi sjálfur ekki gefa kost á viðtali vegna málsins, enda í frekar vondri stöðu til slíks þar sam hann er jú alveg öfugur. Fréttin verður trúlega aldrei uppfærð.
