
Sá fáheyrði atburður átti sér stað nú nýlega við reglulegt borðhald fjölskyldu formanns Timburmanna að þeim tókst með sameiginlegri bæn einni saman að breyta vatni því sem í glösum var í vín!
“Já, þetta var alveg magnað sko” sagði formaðurinn í viðtali við Timbur-fréttir. “Við vorum bara þarna, fjöllan, að undirbúa okkur fyrir hádegisátið eins og vanalega. Þar sem allt vínið var búið eftir öflugan morgunmatinn fyrr um daginn þá ákváðum við að henda í eins og eina bæn. Við höfum jú eins og svo margir heyrt söguna góðu um bruggarann mikla. Og viti menn! Þarna voru allt í einu komin full glös af dýrindis víni. Þú getur rétt ímyndað þér gleðina maður”.
Ekki náðist að hafa viðtalið lengra við formanninn þar sem hann, ásamt fjölskyldu sinni, er nú búinn að setja það á dagskrá í a.m.k. 15 tíma á dag að liggja á bæn. Ekki er vitað í hvaða tilgangi.
