Verslunarkeðjan Krónan hefur ákveðið að taka upp nýtt afgreiðslukerfi sem byggir á fullkomnu trausti til viðskiptavina sinna. Kerfið er þannig að fók kemur einfaldlega í verslanir, tekur þær vörur sem það vill og borgar svo vonandi bara sem fyrst, eða allavega þegar það nennir.
Kerfi þetta hefur verið notað í nokkrum verslunarkeðjum erlendis, en því miður eru allar þær keðjur orðnar gjaldþrota, þannig að ekki liggur alveg ljóst fyrir hversu frábært þetta kerfi í raun og veru er.
“Við treystum okkar viðskiptavinum fullkomlega” – sagði Frímann Gjöfull, verslunarstjóri Krónunnar í hræódýru viðtali við Timbur-fréttir í tilefni þessarar ákvörðunar. “Fólk bara mætir og tekur það sem það vill í sínar körfur og svo væri bara frábært ef það myndi nenna að millifæra á okkur það sem það tók við fyrsta tækifæri. Ef fólk nennir því þá er það bara frábær bónus!”
