Í morgun kom í ljós að félagsskapurinn Timburmenn hefur orðið fyrir svokallaðri “hostile takeover” eða fjandsamlegri yfirtöku, eins og það er kallað á frummálinu. Nýliðahreyfing Timburmanna hefur að sögn tekið yfir höfuðstöðvar Timburmanna og er talið að þeir hafi tekið formann Timburmanna í gíslingu. Forsprakki nýliðahreyfingarinnar hefur gefið frá sér yfirlýsingu um að fyrirhugaður aðalfundur, eða bænaferð, Timburmanna verði haldinn, en undir allt öðrum formerkjum en áður var auglýst og venja er til.
“Já þetta verður allt annað stöff” – sagði byltingarforingi nýliðahreyfingar Timburmanna í ofsafengu viðtali. “Við breytum öllu og gerum það bara breytinganna vegna, ekki út af neinu öðru. Í staðinn fyrir golf kemur t.d. krikket, og í staðinn fyrir póker kemur rommí !” Og byltingaforinginn hélt áfram: “En það sem er mest um vert að við breytum öllu mataræði helgarinnar og snúum okkur beint að veganisma. Þannig að í staðinn fyrir viðurstyggilegt lambakjöt kemur tófúbeð, og í staðinn fyrir þessa ógeðslegu svínahnakka sem þessir villimenn hafa borðað hingað til bjóðum við uppá döðlubreiðu. Við brottför á sunnudag verður svo boðið uppá laufblaðasteik í stað gerlafæðis eins og hamborgara og að ekki sé talað um þessar hryllilegu pylsur sem þessir fávitar hafa lagt sér til munns í tíma og ótíma hingað til.”

Eldri timburmenn eru vægast sagt uggandi yfir þessum atburðum, en því miður náðist ekki í neinn þeirra í viðtal og er ástæða þess að þeir eru allir á Grillmarkaðinum að borða vel fyrir helgina!
