
Nýliðahreyfing Timburmanna, undir forystu Dags Begg Ertssonar, harðneitar að hafa hafið uppreisn og tekið yfir sambandið. Um sé að ræða nauðsynlegar breytingar sem komi öllum til góða til lengri tíma litið.
“Gömlu hundarnir sjá þetta kannski ekki vel, enda komnir með ský í augasteinana. Það eru breyttir tímar. Nú þarf að hafa í huga sótsporið og ljósstillífunina.” segir Dagur Begg. “Svo eru þeir nú margir félagarnir orðnir ansi illa haldnir líkamlega þannig það er bara gott mál að taka smá hreinsunarkúr á þetta.”
“Við héldum könnun meðal félaganna sem tóku nú frekar dræmt í þetta en við látum það ekki stoppa okkur í að gera g(r)óða hluti (Dagur Begg er eigandi Grænmetissmiðjunnar og aðal innflytjandi vara fyrir Krikket iðkun, innskot blaðamanns). Til að tryggja það að við getum sagt að allir hafi tekið þátt í þessum breytingum þá erum við búin að semja við veitingastaðina í nágrenni við fundarstað um að það verði ekkert á boðstólum annað en soðið blómkál. Við höfum einnig fjárfest í steikarleitartæki sem umsvifalaust sparkar þeim út sem neytt hafa einhverra löðrandi steika svona rétt áður en mætt er. Slíkt verður ekki liðið.”
