Senior man resting, lying on sand at the beach. Summertime travel vacation at the beach. Senior man body on beach In summer. Man in swimming trunks and a cap sunbathing on the beach.
Athygli vakti á dögunum þegar öldungur nokkur lagðist fyrir við Reykjavíkurhöfn og dvaldist þar daglangt. Um kvöldið stakk hann sér svo til sunds. Morguninn eftir var hann mættur aftur og lá makindalega á og við höfnina. Svona gekk þetta í nokkra daga. Atvikið hefur vakið mikla athygli, enda fátítt að öldungar liggi eins og hráviði um strendur þessa lands, við sendum þá jú yfirleitt til Tene ! Ekki náðist í öldunginn við gerð þessarar fréttar enda er frekar vont veður og tíðindamaður Timbur-frétta nennti einfaldlega ekki niður á höfn. Grunur leikur þó á að hér sé um formann Timburmanna að ræða en það hefur ekki fengist staðfest.

