Frændurnir Karíus og Baktus hafa sagt störfum sínum lausum hjá Iceland-er. Þeir hafa starfað þar sleitulaust frá því að þeir hættu störfum í Þjóðleikhúsinu forðum daga. Félagarnir hafa sem kunnugt er séð um að dreifa sælgæti í flugvélum félagsins, en vegna tannpínufaraldursins hefur það ekki verið gert lengi. Ekkert hefur gengið að bólusetja fólk við tannpínu þrátt fyrir góða viðleitni fyrirtækja eins og Tannzer og Tannsa-zeniga. “Við erum bara orðnir hundleiðir á þessu ástandi” – sagði Baktus í gómsætu viðtali við Timbur-fréttir. “Við nennum bara ekki að standa í þessu lengur, auk þess sem að hann Jens er líka hættur að vinna hjá Iceland-er.” Viðtalinu við Baktus lauk með því að hann bauð tíðindamanni Timbur-frétta ókeypis sleikjó,alveg frítt !
