senior angel drinking wine
Formaður Timburmanna hefur sent kvörtunarbréf til umboðsmanns Alþingis þar sem kvartað er undan sífelldri og niðurlægjandi umfjöllun um hann.
“Maður er bara málaður sem einhver eymingi!” segir hann (skrifað með hástöfum í bréfinu en ekki þykir við hæfi að birta það hér þannig). “Og ekki hjálpar myndefnið, þar sem maður er látinn líta vafasamlega út”.
Hann krefst þess að fá óopinbera afsökunarbeiðni ásamt 3 brettum af góðu víni. Öðruvísi náist ekki sátt um málið.
Fréttastofa Timburmanna hefur þó eftir heimildum að ástæða þessa upphlaups formannsins sé nú einfaldlega bara að ná í góðan skammt af víni til að bera fram á komandi aðalfundi félagsins.
