Poppunginn Just in Bibbi lenti á Reykjavíkurflugvelli nú fyrir skemmstu. Um var að ræða eina glæsilegustu lendingu sem sést hefur á þeim góða flugvelli fyrr og síðar.
Bibbi sjálfur flaug vélinni og var það í fyrsta sinn sem hann reyndi slíkt án þess að vera blindfullur og undir áhrifum eiturlyfja. Eins og allir vita kann það engri lukku að stýra, og hafa menn nú mestar áhyggjur af því að hann ætli sér einnig að syngja edrú á komandi tónleikum, en þá fer örugglega allt í klessu, bömmer og steik !
