Ákveðið hefur verið að gera þær veigamiklu breytingar á höfuðstöðvum Timburmanna
að öll salerni verða sameinuð í svokölluð kynlaus klósett. Þannig munu bæði konur og karlar geta nýtt sér möguleikann að pissa í hlandskálar að vild hlið við hlið. “Já það er rétt” – sagði talsmaður Timburmanna alveg í spreng í viðtali. “Okkur hefur verið legið á hálsi af jafnréttisnefnd Timburmanna að gera nú þessa bragabót á húsakynnum okkar, og gera þannig alls ekki upp á milli kynjanna í þessum veigamikla og háalvarlega máli.”
Spurningin liggur þó fyrir hver tilgangurinn með þessari aðgerð er þar sem konum hefur aldrei verið heimill aðgangur að höfuðstöðvum Timburmanna og verður aldrei hleypt þangað inn samkvæmt samþykktum félagsins ! Við hugðumst spyrja talsmann Timburmanna nánar út í þetta mál en það var því miður ekki hægt þar sem hann var á klósettinu !
