
Nú á þriðja tímanum voru björgunarsveitir Hafnarfjarðar kallaðar út, þar sem söngstirnið og poppdívan Björk festist í höfuðfati einu ógurlegu sem hún notaði til að hræða hund nágrannans. Ekki vildi betur til en svo að þegar stórstjarnan ætlaði að losa sig við höfuðfatið, eftir að hafa, á vel heppnaðan hátt, hrætt líftóruna úr tveim hundum og einni gamalli konu í hjólastól í hverfinu, þá reyndist allt fast og höfuðið gekk ekki úr höfuðfatinu. Björgunarsveitin Flugfrískir frá Hafnarfirði kom tafarlaust á vettvang og með þrautseigju og liðleika náðu þeir að koma smjörklípu undir hatt poppprinsessunnar og með því móti losa höfuðfatið af henni. “En við sáum strax að það var ekki svo góð hugmynd” – Sagði Björgmundur Björgráðsson formaður björgunarsveitarinnar í björgulegu viðtalið við Timburfréttir. “Um leið og við sáum andlitið á henni þá skelltum við tafarlaust hattinum á hana aftur, – það er bara betra svoleiðis !”
