Á nýyfirstöðnum átakafundi Timburmanna var tekin sú örlagaríka ákvörðun að skipta
um “Vefbossa” en sú virðingarstaða er, sem kunnugt er, staða vefstjóra Timbur-frétta. Nýkjörinn formaður Timburmanna, Hrúturinn Hreinn, sagði að ekki hefði komið annað til greina en að skipta um vefbossa á þessum tímapunkti þar sem gamli vefbossinn var orðinn frekar siginn, slappur og illa hirtur almennt. það var yfir bossi glamúr heimsins sem nánast var sjálfkörin til starfans, en þar erum við náttúrulega að tala um hina einstaklega hæfileikaríku og vel gefnu Kim Karrassían. Kim hefur nú þegar tekið til starfa, en ákveðið hefur verið að efla til landssöfnunar um næstu helgi til að safna fyrir nýjum skrifborðsstól sem passar fyrir þennan engla-bossa !
