Hinn landskunni, hargifti, piparsveinn og fréttamaður, Logi Bergur lagðist undir
hnífinn um daginn, þ.e.a.s. hann rakaði sig. Ekki þótti stætt á öðru þar sem andlit hans var nýlega lagt í umhverfismat og var það samróma álit nefndarmanna í umhverfisnefnd að skegg þessa manns yrði að skerða verulega, enda varðaði málið við þjóðarheill. Það kom að vísu smá babb í bátinn þegar nefndarmenn sáu nýrakað andlit Loga og áttuðu sig þá á því að skeggið var, eftir á að hyggja, hreint ekki svo afleit hugmynd. Nú hafa allir nefndarmenn umhverfisnefndar, ásamt umhverfisráðherra og hjálparsveit Skáta ákveðið að taka höndum saman og hjálpa Loga við að láta sér vaxa skegg aftur hið snarasta !
