Samkvæmt nýrri könnun “Glæsilegra, aðlaðandi, leiðandi, lífsstíls og uppbyggandi
persónukannana (Gallup)” þá er það óyggjandi að Timburmenn þykja mest eggjandi menn landsins. Slembiúrtak tvö hundruð kvenna, sem eru af erlendu bergi brotnar, og starfa hér á landi við ýmsar listgreinar, svo sem listdans á súlu leiða þetta í ljós. Reyndar er talið hugsanlegt að konurnar hafi ekki alveg skilið spurningarnar til fullnustu, en hverjum er ekki sama um það !
