Fína og ríka fólkið hefur nú tekið upp nýjasta æðið í henni Hollywood, en það er að koma sér upp netþjónum í stað venjulegs þjónustufólks. Allir vita jú að venjulegir þjónar geta skipt skapi, hafa tilfinningar, þurfa að fara á salerni, fá matar og kaffitíma auk svimandi hárra launa og allskyns annara óþolandi vandræða. Netþjónar á hinn bóginn eru bara online og ekkert vesen ! …Vefverslun Timburmanna býður nú fullkominn og flottan netþjón á aðeins 199.999 – með vaski og baði ! – nældu þér í einn, því hann er betri en ekki neinn !!
