Fjárlagafrumvarpið var samþykkt á Alþingi í dag við lítinn almennan fögnuð. Steingrími Joð finnst það bara “fjári laglegt” en hann er því miður algjörlega einn um þá skoðun. Markverðast í frumvarpinu er……. ummm bíðið aðeins………. uhhhhh það hlýtur fjandakornið að vera eitthvað……… tja……………. svei mér þá !
– Því miður fannst ekkert markvert og þaðan af síður jákvætt við frumvarpið og vindum við okkur bara þá í að útbúa næstu frétt, en auðvitað ekki fyrr en áfallahjálp er lokið.
