Ákveðið hefur verið að skipta út öllum ráðherrum í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og að í stað núverandi ráherra komi fólk af viti og með fulla fimm, eins og sagt er.
Heilbrigðisráðherra verður Gillzenegger sjálfur, enda er hann alveg ferlega heilbrigður að eigin mati. Í umhverfisráðuneytið fer forstöðukonan í JB heilsunuddi, og var öllum ljóst að engin önnur kom til greina í það djobb. Utanríkisráðherra verður Ásdís Rán, því hún er rosalega mikið fræg svona erlendis. Fjármálaráðherra verður Sverrir Þór Sverrisson, eða Sveppi, en hann hefur grætt á tá og fingri á því að haga sér eins og hálfviti um margra ára skeið, og þykir því nákvæmlega réttur maður á réttum stað. Í velferðarráðuneytinu mun Jón Stóri hreiðra um sig, því engum er jafn annt um velferð samborgara sinna og honum og ekki má gleyma forsætisráðuneytinu en þar mun ráða ríkjum engin önnur en Jónína Ben, en Guð almáttugur sendi tölvupóst til Gunnars í krossinum á dögunum og sagði að það væri geðveikt góð hugmynd ! – Guð blessi Ísland !
