Smíðaklúbburinn Timburmenn átti hæsta tilboðið í Perluna, en það kom í ljós í dag
þegar tilboðin voru opnuð. Fimm önnur tilboð bárust, en ekkert þeirra var jafn rausnarlegt og vel útilátið og tilboð Smíðaklúbbsins. Timbur-fréttir höfðu samband við gjaldkera Timburmanna og spurðu hann hvort staðið yrði við tilboðið um kaup á Perlunni ef til kæmi: “Hvað ???!!! – Perluna !! …kaupa Perluna !!! …Nei nei nei ég ætlaði aldrei að kaupa Perluna ! Ég hélt ég væri kominn í samband við vændishús og var að panta kerluna !!!! – Crap maður, nú verður stjórnin örugglega öskureið!!”
