“Hjá Timburmönnum hefur lítil sem engin virðing verið borin fyrir reynslu í neyslu drykkja þegar kemur að úthlutun lykilstarfa í félaginu”, segir hr. Jón Þambann, stofnfélagi í Timburmönnum.
“Það er augljóst mál að í stöðu gjaldkera hefur verið ráðinn einstaklingur sem uppfylli ekki skilyrði félagsins hvað varðar reynslu og þekkingu í drykkjumálum.
Þessi einstaklingur var tekinn fram fyrir þrjá aðra umsækjendur sem allir hafa langa og víðtæka reynslu af félagsstarfinu og drykkjumálum. Þeir hafi allir verið látnir taka drykkjuprófið DrinkBeer247, verklegt getupróf, og hafi sá eini sem ekki stóðst prófið verið ráðinn.
Nýleg mistök gjaldkerans styðja mitt mál!”, segir hr. Þambann. Þess má geta að nýlega var birt frétt af stórmistökum gjaldkera félagsins sem að öllum líkindum mun kosta það mikið að næsta árshátíð muni þurfa að styttast úr 16 dögum niður í 15, “sem er grafalvarlegt mál” að sögn hr. Þambann.
Ljóst er að á fyrirhuguðum ársfundi félagsins verði ansi mikill hiti í mönnum.
