Sú saga gengur fjöllum hærra að formaður Timburmann hyggist bjóða sig fram til
forseta, en sem kunnugt er verða forsetakosningar á Íslandi á næsta ári. Formaður Timburmanna, sem reyndar skrifar frétt þessa sjálfur, hefur reynt árangurslaust að fá það staðfest hjá sjálfum sér hvort fótur sé fyrir þessum fréttum eður ei. “Já það er rétt” – sagði formaður Timburmanna í átakalitlu viðtali við sjálfan sig í dag, “Ég er búinn að reyna ítrekað að snúa svar út úr mér, en ekkert hefur gengið. Ég er þrárri en allt sem þrátt er og segi ekki rass***!”
