Landsfundur Samfylkingarinnar var haldinn með pomp og prakt fyrir skemmstu. Á þeim fundi gerðist einfaldlega ekkert markvert svo munað sé. Jú hún þarna gamla gráhærða var víst endurkjörin formaður, og einhverjir fleiri hlutu eitthvað kjör, en samt voru nokkrir sem hlutu ekkert kjör, þar sem kosningafyrirkomulagið var ekki alveg nógu kjörið. Það getur hinsvegar vel verið að fleiri hljóti kjör um leið og kjörið tækifæri til þess kemur. Þeir munu þá verða látnir vita, það er alveg kjörið. Einna mesta athygli vakti þó ræða formannsins á landsþinginu, því enginn í salnum kannaðist við landið sem hún var að lýsa þar sem kjörin voru svo góð ! …Á landsfundi hvaða lands skyldi hún eiginlega hafa verið ?
