Eftir að árshátíð Timburmanna var haldin í Skagafirðinum varð ljóst að offituvandamál
Íslendinga almennt er orðið alvarlega feitt vandamál, svo ekki sé meira sagt. Í sumarbústað Timburmanna var heitur pottur, sem gefinn er upp fyrir 16 manns, en Timburmennirnir sjö sem mættu á hátíðina pössuðu ekki ofan í pottinn, og þótti það mjög tignarleg sjón þegar sá síðasti kom ofan í að þá spýttust gjarnan einn (eða fleiri) í tignarlegum boga upp úr pottinum í staðinn ! …Tíðindamaður Timburmanna segir að þetta verði ekki vandamál í næsta skipti, því þá muni hópurinn einfaldlega leigja sjö heita potta, þannig að hver og einn Timburmaður fái sinn einkapott til ráðstöfunar.
(myndin sem fylgir fréttinni gæti verið sviðsett)
