Fjármálaeftirlitið í Luxemborg hefur nú til skoðunar viðskipti vogunarsjóðs Timburmanna, TIM.B.UR Capitol, vegna gruns um innherjasvik.
Að sögn fulltrúa fjármálaeftirlitsins er um að ræða umfangsmikil viðskipti yfir margra ára tímabil. Einn stærsti eigandi TIM.B.UR Capitol er, eins og flestir vita, Timburmenn Group, en fulltrúi þeirra hafði um málið að segja: “Ég skil nú ekkert í þessu. Ég hélt það mætti nú enginn skoða neitt svona þarna í Lux. Hélt að allt væri nú bara svona… þú veist… soldið prívat þar. Það er nú akkúrat ástæðan fyrir því að við stofnuðum þennan sjóð sko, ha”.
Ekki hefur náðst í neinn úr stjórn Timburmenn Group síðan spurðist út um málið.
Þykir málið hið vandræðalegasta fyrir félagið þar sem nú er nýyfirstaðinn ársfundur og árshátíð Timburmanna þar sem ekkert var til sparað og hafa einmitt margir verið að furða sig á hvaðan félagið hafi fengið fjármuni til hátíðahaldanna en samkvæmt ársreikningi þess var eina veltan 2010 eitt stk. Captain Morgan flaska.
