Einu sinni var Palli, en hann var einn í heiminum. Dag einn var Palli ráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins, sem þótti alveg stórmerkilegt, því hann var jú alveg einn í heiminum. Stjórn bankasýslunnar varð náttúrulega að velja Palla, því það var nú ekki eins og það væri neinn annar í heiminum til að velja, þar sem Palli var jú alveg einn í heiminum. En fjármálaráðherrann og nokkrir þingmenn og flestir landsmenn voru ósáttir við að Palli væri ráðinn, og vildu meina að Palli væri ekkert endilega svo ofboðslega hæfur, bara þó að hann væri einn í heiminum. Þá fór stjórn bankasýslunnar í fýlu og sagði af sér, og eftir stóð aumingja Palli, alveg gjörsamlega aleinn í heiminum. Palli var mjög leiður og ákvað að þiggja ekki forstjórastarfið, því það yrði hvort eð er ekkert skemmilegt að vera fullkomlega vanhæfur í starfi, ef enginn væri í heiminum til að taka eftir því og hneykslast á því !
