Nú er illa komið fyrir Iceland express, því fyrrum forstjóri félagsins, Bóbó trúður hefur ákveðið að stofna nýtt flugfélag sem heitir Iceland Erhress, og er Iceland Erhress ætlað að fara í bullandi samkeppni við Iceland Express. Ákveðið hefur verið að einkennislitur hins nýja félags verði appelsínugulur og að eitt af helstu einkennum félagsins verði að vera helst aldrei á réttum tíma og að halda helst aldrei nokkuri áætlun. Núverandi forstjóri Iceland Express, Lilli api, segir að hann sé ekki alveg sáttur við þetta allt saman. “Það er eitthvað þarna sem pirrar mig, mér finnst eitthvað í þessu svo kunnuglegt, en er ekki alveg að átta mig á því !”
