Seðlabankastjóri tilkynnti í dag að stjórn Seðlabankans hefði ákveðið að afskrifa Steingrím J Sigfússon fjármálaráðherra í eitt skipti fyrir öll. “Já það er rétt, við ákváðum á peningastefnufundi stjórnar bankans í dag að það væri alveg fullreynt að eitthvað gagn yrði af þessu eintaki og það va einróma samþykkt að afskrifa hann.” – Aðspurður sagði bankastjórinn að afskrift þessi hefði lítil sem engin áhrif á stöðu Íslands á erlendum fjármálamörkuðum, en hinsvegar væru vonir bundnar við að afskrif þessi kynni að lyfta brúnum margra Íslendinga, og ekki veitti af !
