Sæðisbankastjóri Timburmanna hefur tilkynnt um enn eina vaxta-hækkun bankans, og er nú svo komið að hinn almenni Timburmaður á í mestu erfiðleikum með að rísa undir þessu og leggja inn nógu mikið magn í bankann í hvert skipti. Borið hefur við að menn þurfi jafnvel að mæta þrisvar til fjórum sinnum til að skila af sér nægu magni fyrir eina venjulega innlögn.
Uppþornaður Timburmaður, sem ekki vildi koma fram undir nafni, sagði að hann ætti orðið í mestu vandræðum að standa í hefðbundnum skilum við innlögn í bankann.
“Þetta er rosalegt, maður getur varla staðið í þessu” – sagði hann í frekar ris-lágu viðtali við tíðindamann Timburfrétta. “Ég meina maður reis nú varla undir þessu áður, en nú er eiginlega alveg vonlaust að ná honum upp, þ.e.a.s. upp í þessa vexti!”
Rislágur Timburmaður sem sem ekki vildi koma fram undir nafni…

