
Timburmenn Group hefur nú verið ákært fyrir að valda óhóflegum manngerðum jarðskjálftum. Tilefnið eru tíðir jarðskjálftar á Hellisheiðinni undanfarnar vikur.
Eins og flestir vita reka Timburmenn Group þar framleiðslu- og dreifingarstöð á bjór til handa félagsmönnum. Timburfréttir inntu forstjóra verksmiðjunnar svara á hvað veldur: “Tjahh, þetta hefur nú ósköp eðlilegar skýringar. Það styttist í ársfund félagsins og því er framleiðslan í algjöru hámarki þessa stundina. Það sem hefur kannski breyst frá síðustu árum er að nú nýlega tókum við í gang ný gerjunarker og dreifilagnir hér á svæðinu. Miðað við magnið sem verið er að vinna núna er ekkert skrýtið að svona smáhrollur fari um umhverfið.
En er þetta ekkert hættulegt? Getur þetta ekki valdið stórum náttúrulegum skjálftum. “Nahh… ekki á ég von á því. Við erum jú svo miklir náttúruunnendur. Það má þó búast við smærri skjálftum hér og þar eftir ársfundinn… þeir skjálftar verða líka af eðlilegum sökum.”
