Ljóst var að hvorki gekk né rak hjá honum þarna Ólafi eitthvað, landsliðsþjálfaranum
líttkunna, en árangur Íslenska landsliðsins hefur aldrei mælst jafn slakur og nú, en Ísland hefur verið í þrjúhundruðogfimmtugasta sæti á styrkleikalista alþjóða tuðrusparksambandins, af hundraðogfimmtíu þjóðum mögulegum. Ólafur er nú hættur og farinn að reka pylsuvagn á Vaðlaheiði, en við af honum tekur lítt þekktur þjálfari frá útlöndum. “Já við hittum þennan gaur í partýi um daginn” -skrækti Geir Þorsteinsson formaður fótboltafélagsins í háværu viðtali við Timbur-fréttir. “Hann kom vel fyrir, virðist líklegur til að kunna að beita góðum aga, ég man nú ekki alveg hvað hann heitir, örugglega Jason eitthvað, minnir mig !”
