Enn eitt hneykslismáið reið yfir land vort fyrir skemmstu þegar í ljós kom að hinn aldraði
og góðkunni diskóbolti Siggi Hlúnk hefur logið til um aldur um langt skeið. Alþjóð hélt að Sggi Hlúnk hefði sent þáttinn sinn á Bylgjunni, manstu hver ég var, beint frá Hrafnistu hverju sinni, en nú hefur komið í ljós að svo er alls ekki. Þrátt fyrir að spila ótrúlega gamla tónlist þá hefur semsé komið í ljós að Siggi Hlúnk er ekki nema rétt rúmlega fertugur, en ekki rétt rúmlega áttræður, eins og allir héldu. “Ég skil ekkert af hverju fólk hélt ég væri svona gamall” sagði Siggi Hlúnk í lágstemmdu viðtali við Timbur-fréttir. “Fólk heldur þetta bara, kannski myndast ég bara svona illa, eða eitthvað – ég veit ekki!”
