
Innihald:
1 stk. SS-pylsa
1 stk. pylsubrauð
1 rönd remolaði
1 rönd tómatsósa
1 rönd sinnep
dash af steiktum lauk
dash af hráum lauk
Takið eina SS-pylsu og skellið í pott. Gjarnan má hafa vatnið sjóðandi heitt til að flýta fyrir hituninni. Gott er að setja smá bjór, eða Pilsner út í vatnið til að bragðbæta pylsuna. Setjið pottinn á eldavélarhellu og kveikið á eldavélinni. Gjarnan á þeirri hellu sem potturinn er á. Um leið og suðan kemur upp skal taka pottinn af hellunni. Gjarnan má þá slökka á eldavélinni, til að forðast leiðinda eldsvoða. Takið Pylsubrauðið og skerið það eftir endilöngu. Ekki í gegn. Ef búið er að skera pylsubrauðið, má gjarnan sleppa þessari aðgerð alveg. Hitið brauðið í örbylgjuofni, eða með öðrum viðurkenndum aðferðum, ef vill. Stráið steikta lauknum í botn pylsubrauðsins, og svo koll af kolli, hráa lauknum, tómatsósuröndinni, sinnepsröndinni, remolaðiröndinni, og til að fullkomna verkið er gjarnan SS-pylsan sett ofan á allt saman. Borðið heitt. EF vill má bæta ýmsu góðgæti á herlegheitin. Þetta er bara spurning um hugmyndaflug. Til dæmis Rauðkáli, eins og þeir gera á Akureyri. Einnig má nota kokteilsósu, eða hrásalat, eða í rauninni bara hvað það sem hugurinn girnist.
Mjög auðvelt er að stækka þessa uppskrift, með því að bæta við fleiri SS-pylsum, brauðum og meðlæti.
Verði ykkur að góðu !
