Íslensk getspá hefur óskað eftir því við íslensk stjórnvöld (Lottómálaráðherra) að fá að breyta leikreglum Lottósins á þann veg að ekki sé nokkur möguleiki til að vinna hæsta vinninginn. Þetta segja forsvarsmenn Lottósins nauðsynlegt svo þeir þurfi ekki alltaf að vera að borga út alla þessa vinninga, sem sé mjög þreytandi.
Þetta sé best að gera með því að fjölga lottókúlunum úr 40 í 400 eða bara 4000, og svo væri sniðugt að hætta bara alveg að draga út tölurnar í hverri viku. Nýja tillagan er að dregið verði einu sinni á ári, nema fjórða hvert ár, og að drátturinn fari alltaf fram á sama degi, eða 29. febrúar.
Tillögur þessar eru nú í meðförum yfirvalda (Lottómálaráðherra) og má búast við að niðurstöður úr þeirri skoðun komi öðru hvoru megin við einhverja helgina á komandi árum eða áratugum.
