Nú eru sveitastjórnarkosningar yfirstaðnar og verður að segjast eins og er að úrslitin víða hafa vakið furðu, en þó hvergi eins mikið og í höfuðborginni þar sem svo virðist sem næstum allir hafi unnið kosningasigur, sama hversu miklu fylgi þeir bættu við sig eða töpuðu.
B – listi Framsóknarflokksins fékk 18.7% og fór úr 3.2% í síðustu kosningum. fengu fjóra fulltrúa og bættu með því semsagt við sig fjórum fulltrúum sem verður að teljast bara nokkuð góður árangur.
C – listi Viðreisnar fékk 5.2% en var í 8.2% síðast og fengu alveg einn fulltrúa en það var samt bara ágætis sigur að ná einum fulltrúa að þeirra sögn, þó svo þeir væru hluti af meirihluta sem féll.
D – listi Sjálfstæðisflokksins fékk 24.5% en fengu 30.8% síðast. Úr þessu komu sex fulltrúar og tapið nam tveimur. Versta kosning flokksins fyrr og síðar á höfuðborgarsvæðinu, en sigur engu að síður því þeim var spáð slæmu gengi í skoðanakönnunum, og þeir seldu óvart smá banka.
F – listi Flokks fólsksins fékk 4.5% en fengu 4.3% síðast. Þetta er bæting upp á 0.2% og því hvorki meira né minna en stórsigur og alveg heill fulltrúi.
J – listi Sósíalistaflokkins fékk 7.7% en fengu 6.4% síðast. Þetta þýðir tveir fulltrúar og fylgisauking upp á 1.3% sem auðvitað er stórsigur.
P – listi Pírata fékk 11.6% og fóru úr 7.7% sem er reyndar bara reglulega góð bæting og þýðir 3 fulltrúar, þrátt fyrir að vera í meirihluta sem féll.
S – listi Samfylkingar fékk 20.3% en voru með 25.9% síðast. Útkoman er 5 fulltrúar en voru með 7 síðast. Þrátt fyrir að vera að stýra meirihluta sem féll (gerðist reyndar líka síðast en hver er að telja) þá þýða þessi úrslit samt, skv. útskýringum oddvitans, að þeir hafi í raun meira en 60% fylgi því þeir séu fylgjandi borgarlínu og samgönguáætlun og hafi því í raun unnið glæstan stórsigur!
V – Vinstri grænir fengu 4% en fengu 4.6% síðast. Þetta þýðir einn fulltrúi. Eina framboðið sem kvaðst ekki hafi unnið kosningarnar og óska eftir að vera ekki í meirihlutasamstarfi vegna stöðu sinnar. (allir hinir skilja ekkert í því hvað sé eiginlega að þeim, eru alveg að eyðileggja vinningspartýið).
Önnur framboð fengu ekki næg atkvæði til að ná inn borgarfulltrúa, en óþarft er að taka það fram að öll þau framboð (E – Reykjavík besta borgin, M – Miðflokkurinn og Y – Ábyrg framtíð) unnu engu að síður ýmist, sigur, glæstan sigur, stórsigur og/eða varnarsigur).
