Þar sem nú er unnið ötullega að því að tjaldabaki að mynda starfhæfan meirihluta í Reykjavíkurborg, er eins og gengur mikið um baktjaldamakk og þreifingar ýmisskonar. Heyrst hefur að Hildur hafi hringt í dag en Dagur hafi ekki svarað Hildi en samt hafi átt sér stað samtal, – eða ekki!
Oddvitar hins fallna meirihluta hafa ákveðið að fylgjast að í viðræðunum, hvað svo sem það þýðir nú. Kannski fara þau með sama strætó, eða leiðast fallega yfir gangbrautir? En allavega þau fylgjast að og það hlýtur nú bara að vera fallegt. Þessvegna skilur tíðindamaður Timbur-frétta ekki afhverju Hildur hringir ekki bara í einhvern hinna oddvitanna og biður viðkomandi um að rétta Degi símann?
Best þykir þó einstaklega gott svar Kolbrúnar Baldursdóttur, oddvita Flokks fólksins er hún var spurð um stöðu mála og gang þreifinganna: “Það hefur enginn rætt við mig þó nokkur símtöl hafi átt sér stað” – Tíðindamanni Timbur-frétta leikur mikil forvitni á að vita hverskonar símtöl þetta hafa verið, fyrst enginn ræddi neitt? Voru þetta bara dónasímtöl?
En samsagt í stuttu máli, og til að einfalda þetta, þá er staðan núna nokkurnveginn þessi og fylgist þið nú vel með, því þetta verður bara skrifað einu sinni:
S C og P eru að fylgjast að og ætluðu að taka V með sér en V mátti ekki fara út að leika. D er alltaf að reyna að hringja í S sem svarar ekki og D er líka mikið að reyna að tala við B, sem er jú vinsælasta stúlkan að þessu sinni. D er nefnilega rosa spennt fyrir því að leika við C og F og auðvitað líka B (þarf ekki að taka það fram) en V er ennþá bara heima og má ekki taka þátt. S er ekki ennþá búið að hringja tilbaka í D. J og P vilja alls ekki leika við D en D er alveg til í að leika við alla nema kannski helst ekki S því S kann augljóslega ekki á síma. B er að sögn með pálma í höndunum og enginn skilur hvaða gagn er að því. S vill áfram vera aðal en það vill D líka og B og P, og það er sennilega smá vesen! Meira síðar.
